Berglind B
08.02.2009 17:25:32 / berglindb

Erfið ákvörðun?

Núna er ég búin að sitja með skjalið opið fyrir framan mig í 3 mínútur og er hreinlega bara lost yfir þessu... Ástæðan er sú er að ég get ekki ákveðið mig hvort ég eigi að blogga eða ekki :) Ég skrifaði síðust færslu í júní á síðasta ári, því býst ég passalega við því að það séu allir hættir að lesa þetta blogg fyrir löngu síðan :D Alla vega þá ætla ég að hugsa þetta aðeins lengur hvort ég ætli að byrja aftur að blogga eða ekki.. því það er nefnilega stundum ýmist sem liggur manni á hjarta og bara verður að fá skoðanir á það á móti... tjahh ætli ég mundi samt ekki frekar nota fésbókina í það? En ég alla vega skrifaði þennan tilgangslausapistil og ætla að segja það gott í bili (kannski næstu mánuði;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 18:01:52 / berglindb

Kæru vinir

Þegar stórt er spurt er fátt um svör.. ætli það sé einhver sem fer inná þetta blogg ennþá? Alla vega smá fréttir þá fyrir ykkur sem nennið ekki að taka upp símann :) Ég er sem sagt flutt til Reykjavíkur aftur. Búin með skólann og er orðin fjölmiðlafræðingur úff.. það hljómar eitthvað svo ..að maður sé gömul en ég er nú BARA 24 ára. Ég er að vinna hjá DV og líka það bara ágætlega. Allt öðruvísi samt en ég hélt en þetta er fínt, kannski engin framtíðarvinnan mína en ágætt í einhvern tíma. Þannig að ef þið vitið um eitthvað sem ykkur langar að deila með mér, þá endilega sendið mér mail á berglindb@dv.is eða heyrið í mér í síma 512-7018. jájá endilega segið mér alltaf sem ykkur langar :) Aðeins að nota þessa aðstöðu haha. annars er held ég bara að það sé alltaf það sama að frétta af mér. Komin aftur á byrjunarreit.. flutt heim til mömmu og pabba tímabundið, kallaus og allslaus :) en ég nenni ekki að vera að reyna að þvæla einhverju hér niður því kveð ég bara í bili.. eða kannski í langan tíma :D

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 12:47:06 / berglindb

Kannski smá fréttir..

Já það er orðið frekar langt síðan ég sett inn smá færslu og átti ég erfitt með mig að reyna að muna lykilorðið haha :D En þannig er mál með vexti að ég er að rembast við að klára BA verkefnið mitt og hef voða lítinn tíma fyrir að skrifa smá blogg. En fyrir ykkur sem ekki vitið er ég að skrifa lokaverkefnið mitt um auglýsingar á barnatímum. Áhugavert efni, en vá hvað þetta tekur langan tíma. Væri alveg til í að hafa smá meiri tíma.. en svona er þetta bara, ég HEFÐI alveg getað byrjað fyrr... en það er of seint að hugsa um það núna :D Svo átti ég eftir að (held ég) að segja að ég er komin með vinnu í sumar. Á reyndar eftir að fara og tala við starfsmannastjórann og ganga frá þessu, en ég geri það bara um leið og ég flyt suður. Ég er sem sagt að fara að vinna á DV ;) Talandi um flutning.. ég veit hreinlega ekki hvað ég á að segja um hann. Ég hlakka alveg til EN ég kvíð samt meira fyrir því. Mig langar ekki að flytja :/ Þessi tími sem ég hef átt hér á Akureyri hefur verið alveg geðveikur, þó svo að stundum hefði manni alveg langað að vera í borginni. Þetta er búið að vera svo fljótt að líða, að það er ekki einu sinni fyndið... sagt er að það sem er skemmtilegt líður hratt og það er sko sannarleg satt :D Kannski er hræðslan mest yfir því að nú er ég að verða fullorðin.. æi fattið hvað ég meina? Klára Háskóla og fara að vinna.. allt árið !! það er eitthvað svo skrítin hugsun. Svo líka að flytja aftur heim til mömmu (ekki að það verði eitthvað slæmt) en samt :) Búin að búa ein (eða með vinkonu minni í 2 ár) og fara svo aftur heim til mömmu. já ég gæti sko alveg skrifað helling hvað ég hef verið að bardúsa síðan í hvað mars (skrifaði ég ekki síðast þá:) en ég bara hreinlega nenni því ekki. Svo ég ammæli á laugardaginn og það er ekki gaman að eiga ammæli þegar það er svona mikið að gera í skólanum... SKAMM MAMMA !! En þetta klárast allt saman hjá mér 9. maí og þá verður sko haldið uppá alla áfangana. Síðan er stefnan að reyna að flytja suður helgina 23-25. maí en það kemur bara í ljós þegar nær dregur. Ég þarf bara að vera farin útur íbúðinni fyrir 1. júní :D Jæja ég er að spá í að láta þetta gott heita í bili og halda áfram að skrifa lokaverkefnið mitt :D

» 7 hafa sagt sína skoðun

13.04.2008 13:17:46 / berglindb

Æfa sig segiru?

Sagt er að æfingin skapi meistarann... þá viti þið hvað ég er að fara að gera í sumar :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 15:00:54 / berglindb

Smá fréttir..

Á laugardaginn síðasta var árshátíð skólans. Það var ekkert smá gaman. hehe Nenni nú varla að fara að skrifa upp allt sem var gert.. ég bendi bara á að það eru komnar inn myndir á myspacesíðuna mína og einnig á dagsljos.is/ha08.. endilega tékkið á því. Annars er bara rosalega mikið að gera hjá mér í þessum blessaða skóla. Er að fara að skila einni ritgerð á morgun og svo annarri eftir helgi.. þá fer þetta nú vonandi að róast þannig að ég get farið að byrja á lokaverkefninu mínu. Stefni að því að byrja á því strax á mánudag.. helst á morgun samt, en það kemur í ljós hvernig það fer... Svo erum við að kumpánar, deildin sem ég er í, að fara á snjóþotu á Kaldbak á laugardaginn og verð ég að viðurkenna að ég hlakka rosalega til. Það er farið upp á snjótroðara og svo bara rennt sér niður í marga klukkutíma.. jibbí það verður ábyggilega fjör. Annars á svo bara að læra restina af helginni. Ekkert djamm, eða planað djamm, fram til í maí þegar það er búið að skila lokaverkefninu.. þá verður líka ærlega hrunið í það ;) haha Ég stefni á það að komast með fjölskyldu minni til Vestmannaeyja um páskanna, þannig að ég verð að vera úper dugleg þangað til.. ef ég verð löt kemst ég ekki.. þannig að nú er bara að halda áfram að spíta í lófana og massa þetta. En ég er að spá í að láta þetta gott heita í bili... (Ég bætti inn nokkrum myndum frá árshátíðinni hér inn undir myndasöfn.. en þetta er bara smjörþefurinn af því sem ég setti inn á myspace.. búðu þér til ef þú átt ekki til að skoða :) beint til Írisar frænku)

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 21:46:16 / berglindb

Neinei hvað sé ég

Ég bara varð að skrifa nokkrar línur þar sem ég sá að allt dótið mitt er komið aftur inn :) jibbí Takk takk stjórnendur.. Annars er bara allt ágætt að frétta af mér. Bara mjög mikið að gera. En það er svo sem allt í lagi, þar sem ég ætla að reyna að komast til Vestmannaeyja með fjölskyldunni minni um páskana. Það er svo mikill kostur að hafa þá svona snemma. Annars bíða mín 4 ritgerðir, eða 3 og svo auðvitað lokaverkefnið. En þetta hefst nú allt saman með kalda vatninu. Er t.d búin að sita yfir einni ritgerð frá því kl. 3 í dag og nú er klukkan alveg að verða 10.. ef ég held þessu áfram þá klárast allt á tilsettum tíma :) hihi Annað: Ég hef verið að pæla í svolitlu síðustu daga.. ég er ekkert spennt að flytja aftur til Reykjavíkur.. æi það er bara svo margt sem ég hef verið að hugsa og kannski ekkert rétt að skrifa það niður á þetta blogg.. eitthvað sem ég hef ekki sagt mörgum og langar eða nenni ekki að tala um... æi fatti þið... Það bara verður svo erfitt að flytja aftur suður uppá svo margt, flytja aftur á nýjan stað, (heim til mömmu) byrja í vinnu og svo margt bara, svo ég verð bara að viðurkenna að ég kvíð svolítið fyrir.. mér finnst að ég sé að verða eitthvað svo gömul, þó ég sé bara að verða 24 ára... fatti þið hvað ég er að reyna að fara? En jæja ég held að það sé nóg af þessu röfli í bili, haha... Er að spá í að hætta að læra og fara að horfa á þátt 8 og 9 í One Tree hill :) Segjum það í bili Berglind B (Sorrý samt mikið að þetta sé allt svona saman.. ég er með bil í mínu en samt kemur þetta svona út.. kannski ég bara fari að skipta yfir á aðra síðu, víst það ætlar að vera eilíft vesen á þessu)

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 12:24:07 / berglindb

Eurovision

Jæja þá er komin laugardagur og Eurovisionlag Íslendinga verður valið í kvöld.
Ég get ekki setið á mér og ég verð bara að segja nokkur orð um lögin sem keppa
um þetta merkilega sæti...

Gef mér von- Páll Rósinkrans
Núna veit ég- Magni Ásgeirsson
In your dreams- Davíð Þorsteinn Olgeirsson
Hvað var það sem þú sást í honum?- Baggalútur
Fullkomið líf- Eurobandið
Hvar ertu nú? - Dr. Spock
Ho, Ho, Ho, we say hey, hey, hey- Merzedes club
Don´t wake me up- Ragnheiður Gröndal.

* Gef mér von er rosalega flott lag og er ég alveg tilbúin til að heyra það í útvarpi, Bylgjunni eða á Létt Fm, ekki Eurovisionlag.
* Núna veit ég.. æi ég veit ekki..
kannski ágætislag en mig langar ekki að senda þau út.
* In your dreams ,jahh eins með þetta lag og lagið fyrir ofan.
* Það væri alveg húmor að senda út Baggalút, en þeir eru alltof margir
á sviðinu því mættum við ekki vinna og þá er lítið var í að taka þátt :)
* Þetta lag er það sem við Íslendingar ættum að senda út alveg klárleg,
flott lag, góðir talendur fyrir landið, grípandi danslag sem slær í gegn.
og ekki má gleyma að við séum þá með pottþétt stig frá Litháen og Bretlandi, hihi
* Haha þetta er auðvitað bara grín.. fyndið lag sem er smá grípandi..
en engan veginn Eurovisionlag að mínu mati.
* Mezedes club er kláralega grín frá upphafi, en lagið er engu að síðu gott og grípandi lag. Farið í föt og kennið söngkonunni að
syngja þá kannski sætti ég mig við þetta lag.
* Flott lag og flott söngkona en í útvarpi líka og Gef mér von lagið.

samantekt: kjósum EUROBANDIÐ í kvöld !!!

Ok höfum það alveg á hreinu að þetta er mín skoðun og
endilega segðu mér þín skoðun á þessu.

Hvaða lag finnst þér best?

kv.Berglind B


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 10:44:43 / berglindb

Er ekki allt í lagi???

Já ég bara verð að spurja hvort það sé ekki allt í lagi með fólk ???
Nú er síðan mín búin að vera lokuð í einhvern tíma
og ég lét ekki loka henni, heldur fékk ég mail frá þeim sem sjá um þessa
síðu að það hafi verið einhver annar sem bað um það
(og koma nokkrir alveg upp í huga)
en ef þú ágæti (fokking) vinur sem baðst um þetta..
þá ætla ég bara að biðja þig um að sleppa því að lesa þetta blogg..
ég hef ekkert vantalað við þig !!!


annars er ég ekki viss hvað ég ætla að gera,
halda áfram með þetta blogg, þar sem ég gat opnað annað á sama nafni
eða færa mig yfir... en ég læt þá sem mig langar að viti vita :)

Ein Reið
Berglind B


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 13:25:13 / berglindb

Laugardagur

Jæja þá er kannski komin tími til að segja frá hvernig laugardagurinn var.
Framan af degi var bara tekið því rólega yfir sjónvarpi og borðu pizza,
já það er laugardagur og þá má maður það :)
Síðan uppúr 6 leytið kom Svenni að ná í mig,
eftir smá bið eftir henni Evu minni var ferðinni heitið yfir á Svalbarðseyri.
Fyrsta var stoppað heima hjá foreldrum Evu,
þar sem við Svenni þurftum að bíða aðeins lengur eftir henni Evu :)
Haha Eva ég varð að skrifa þetta :D
Síðan fórum við í fyrirpartý hjá einhverri stelpu,
þar þekkti ég nú hvað kannski 4 manneskjur en engu að síður
var þetta samt stuð.
Síðan var farið á þorrablótið sjálft.
Úfff þetta var ekkert smá skemmtilegt, skemmtiatriði og svona
og ég meira að segja gat hlegið alveg helling.
Þá samt ekki af fólkinu sem var verið að gera grín af, heldur frekar gríninu sjálfu.
Það var sungið fullt af lögum og dansað :)
en það sem stendur hæst uppúr er tilrauna starfseminin mína á þorramatnum.
Það sem ég smakkaði var:
súran hrútspung
Lundabagga
Súran hval
Hákarl
Magál
Nautatungu
Gróft bjúga
Sviðasulti
Hangikjöt
Slátur
harðfisk

Ég var bara að segja að ég var rosalega stolt af mér :)
Versta af þessu var klárlega súri hvalurinn.. ojjj bara
en það var fínt að vera með hangikjötið og harðfiskinn
svona eftir allt þetta rugl.

Eftir þorrablótið skelltum við okkur stöllur á Eurobandið á Vélsmiðjuna.
Shitt hvað ég verð að segja hvað ég elska þetta fólk, hehe
Þetta var svo geggjað gaman að hálfa væri hellingur.
Það var sko mikið dansað og sungið (meira að segja uppá sviði).

Elsku Evu mín og Svenni og öll þau sem voru á Svalbó, Heiða, Haukur og María
TAkk fyrir geggjað skemmtilegt kvöld :)

kv.Berglind B


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 14:43:56 / berglindb

Smá fréttir..

Jæja kannski maður skrifi smá fréttir fyrir þá sem nenna enn að kíkja
inná þessa síðu :) á síðastu 2 mánuðum hef ég byrjað að skrifa margar færslur
en alltaf hætti ég við það aftur.
En ég ætla að láta þessa fara í gegn svona til tilbreytingar.

Jæja það er nú mjög margt búið að gerast í mínu lífi
síðan ég skrifaði síðustu færslu og ætla ég ekki að fara í gegnum
það allt saman. Ég held að þeir sem lesa þetta blogg viti nú flest allt.

en nú er skólinn byrjaður alveg á fullt og ótrúlega mikið að gera.
Ég kemst ekki yfir allt saman á einum degi sem ég ætla mér að gera :/
En ég vona nú að eftir svona mánuð verður þetta komið allt í sama horfið aftur,
ég hef tröllatrú á því :)

Á morgun er ég svo að fara á mitt fyrsta þorrablót,
það er á Svalbarðseyri og hlakka ég mikið til að sjá hvernig þetta fer allt
saman fram haha. Svo er stefnan tekin á Vélsmiðjuna á Eurobandið.
já talandi um Eurobandið.. þá held ég með þeim í evróvisíon en það
er samt annað lag sem ég er að fíla alveg í botn og hvet
ég ALLA til að kjósa það á morgun:
The wiggle wiggle song !!
Koma svo, sendum út eitthvað öðruvísi lag, haha
annars elska ég Friðrik Ómar svo mikið að ég vill samt
senda þau líka út.. æi get ekki ákveðið mig..
..líkt og með margt annað í lífinu mínu þessa dagana :/

en þar sem ég hef ekki bloggað svo lengi, gæti ég alveg skrifað margar
blaðsíður en ákvað að sleppa því.
Ég vona að það líði ekki svona langt þar til ég blogga aftur..

Endilega kvittið fyrir komu ykkar,
gaman að sjá hverjir eru enn að kíkja inná þessa síðu.

Kv. Berglind B


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 22:43:33 / berglindb

Alveg að koma jól..

Hér sit ég við eldhúsborðið mitt á fimmtudagskvöldi
að skrifa jólakort. Búin að pakka og reddí til að fara til Reykjavíkur en...
AFHVERJU fer ég ekki að skrifa ritgerðina?
Jahh svo sum enginn asi á að skila henni 17. des,
langar samt að vera búin með hana þegar ég fer suður.

Alla vega þá vona ég að ég sé ekki að gleyma neinum,
ef þú færð ekki jólakort frá mér í ár,
þá færðu það bara að ári..
kommon þetta er í fyrsta skiptið sem ég sest niður
til að rita nokkur orð á kortin :) hihi

Jólakveðja
Berglind B


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 20:18:15 / berglindb

Sérstakar þakkir

  • Til hennar Gunnhildar minnar sem hjálpaði mér
    ótrúlega mikið um daginn, hefði ekki getað þetta án þín :)
  • Til Önnu Guðlaugar því hún kenndi mér að lesa- ekki skólabækur
  • Til Hauks og Heiðu fyrir að bjóða mér í singstarpartý á föstudaginn síðasta
  • Til Evu og Svenna fyrir að vera dugleg að bjóða mér í mat
  • og öllum þeim sem hafa verið duglegir að kíkja inná þetta blogg
    og kvitta fyrir komu sína :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 15:05:16 / berglindb

Skemmtun dagsins

Hann sagði . .. Ég skil ekki af hverju þú ert í brjóstarhaldara,  það er ekkert til að halda.   Hún svarar - Þú ert í nærbuxum, er það ekki?

Niðurstaða úr könnuninni

Af þessari könnun að dæma má með 95% öryggi segja að könnunin hafi verið marktæk.. sem segir okkur það að heilmingur ykkar sem skoðið þetta blogg hafi átt svona samskipti :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 12:51:54 / berglindb

Ritgerð

Jæja þá er það ritgerðasmíð...
Er sem sagt að skrifa ritgerð og ákvað allt í einu að fara
að taka til á blogginu mínu...

...sem sagt henda út þeim linkum sem eru dauðir.
Sorrý ef ég er að valda einhverjum leiðindum.
Þið látið mig bara vita ef þið eruð aftur farin að blogga :D

Góða helgi
Berglind B


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.11.2007 15:16:39 / berglindb

Langt langt síðan

Úfff það er svo langt síðan að ég skrifaði eitthvað hér
síðast að ég bara hreinlega man ekki hvað er búið að gerst síðan síðast :)

Hápunkturinn er ábyggilega íbúðin.
Við erum sem sagt búin að fá afhent og á jólafríið mitt
eftir að fara allt í að gera íbúðina sæta,
mála, laga hitt og þetta og svona sjæn sem þarf að gera.

Humm annars finnst mér alveg ótrúlega leiðinlegt að skrifa hér,
þar sem ég hef ekkert að segja...

2 vikur eftir af skólanum og alveg nóg að gera...
ekki það að þið hafið áhuga á vita það, hehe.

Annars gengur lífið bara sinn vangang...
Skrifa kannski eitthvað skemmtilegt næst..
ætli það verði samt ekki bara þegar skólinn er búinn.
En á meðan hafi þið það bara gott og gangi ykkur vel
í því sem þið takið ykkur fyrir hendur.

Love Berglind B


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Heimsóknir
Í dag:  26  Alls: 78572
Könnun
Facebook eða myspace?